Jæja kæru bekkjafélagar. Hér kemur loksins bréfið sem mun vera sent út á bekkinn. Það hefur gengið erfiðlega að fá upplýsingar frá GB um þá krakka sem hafa verið með okkur í bekk þannig að endilega skrifið í commentadálkinn þau nöfn sem þið munið eftir. Einnig viljum við biðja þá sem lesa þessa síðu að kommenta á bréfið, þá þurfum við ekki að senda ykkur það líka í pósti - alltaf að spara!!!
Elsku bestu dásamlegu æðislegu bekkjafélagar.
Í tilefni þess að 20 ár (púff) eru liðin frá því að við fermdumst ætlum við að hittast í Víkinni fögru helgina 7-9 ágúst n.k
Í tilefni þessa merka viðburðar ætlum við að hóa saman öllum þeim sem eru fæddir árið 1975 og hafa e-n tímann setið í skólastofu í Bolungarvík og vonandi sjá flestir sér fært að mæta.
Dagskrá hefst á föstudeginum þar sem við ætlum að hittast án maka, og hafa virkilega gaman. Mæting er við Shell skálann kl 18 og verður stuð fram eftir nóttu, jafnvel morgni. Hér er snyrtilegur klæðnaður ekki æskilegur og sá sem mætir í fermingagallanum fær verðlaun!
Á laugardeginum ætlum við svo að hittast mis timbruð í íþróttahúsinu og fara í tarsanleik og taka börnin og makana með.
Um kvöldið endum við svo í mat og skemmtun í Einarshúsi og tökum makana með okkur og þ.a.l. verðum við mun dannaðari en kvöldið áður. Benni verður með gítarinn og Robbi og Hrabba sjá um að stýra fjöldasöng JÍHA!!!
Vonandi sjáum við sem flesta þessa daga því þetta verður svooooo gaman hjá okkur.
Endilega látið okkur vita fyrir 1. júlí hvort þið sjáið ykkur fært að mæta og endilega sendið okkur netföngin ykkar því framhaldið mun fara fram í gegnum netið.
Bestu kveðjur og hlökkum til að sjá ykkur,
Nefndin
Benni – benni@brudkaup.is Simi 690-2302
Elísa - elisarakel@simnet.is Simi 845-8875
Ása - asatorleifs@hotmail.com Sími 862-2617
Fylgist svo með á síðunni www.vikarar75-gb.blogspot.com og svo erum við nú flest á Facebook!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Þið eruð alveg að standa ykkur. S.s. ekkert sem ekki var vitað fyrir nema hlakka til að sjá söngprógrammið hjá Robba og Hröbbu, æði að þau skyldu bjóða sig fram í þetta :-)
ReplyDeleteEn allavega; ég mæti með læti í von um að fá gott sæti og æti - en mér sýnist vera boðið upp á það allt saman þannig að ég er alveg róleg.
Kv. Erna
Glæsilegt :-) Ég fæ sönghlutverk....!!!! Þið eruð vonandi ekki að gera grín að mér með þessu, ég hringdi strax í mömmu og pabba og sagði frá þessu stóra hlutverki mínu. Veit hinsvegar ekki hvað þið eruð að gera með Hröbbu þarna?? Hún getur EKKERT sungið :-D Byrjum bara með hana svo hitar Benni upp fyrir mig ;-) Svo enda ég þetta með básunu spili og söng, sem er svoldið nýtt og á eftir að verða vinsælt á youtube!!!
ReplyDeleteÁn gríns....þá lítur þetta vel út hjá ykkur og ég er bara núna að telja daganna að þessum viðburði.
Hafið það gott elsku sykurpúðar!
Kv, Róbert Daníel
Það er alveg greinilegt að söngur minn er ógleymanlegur:) ég kem sterk inn með hafið bláa hafið og bið ég ykkur öll um að vera ekki að syngja með svo ég njóti mín betur þegar ég flyt lagið:) :)
ReplyDeleteAnnars líst mér rosalega vel á þetta og miðað við hreyfingaæðið sem er hlaupið í bekkinn ætti að vera mikið fjör í tarzan leiknum:)
Kv. söng Hrabba
Flott plan :)
ReplyDeleteKv. Helga.
Flott, ég mæti með mitt lið.
ReplyDeletekv.Anna Svandís
Mér lýst vel á þetta. Bóka þessa helgi hjá mér og vona að konan treysti sér til að koma með mér hehe
ReplyDeleteSjáumst
Kv.Björgmundur