Thursday, August 6, 2009

Jæja, línurnar farnar að skýrast

Jæja félagar, nú ert allt orðið klárt fyrir helgina og tími til komin til að upplýsa mannskapinn, þ.e ef e-r les þessa síðu. Svo er bara að vona að flestir mæti :-)

En enn og aftur, við hittumst við shell kl 18.00 með búss og kruðerí, meira fáið þið ekki að vita......bara bíðið spennt!

Svo til að skýra þetta betur þá bara svörum við spurningunum hans Ragga rúsínu hér.....

Hvað á maður að koma með að drekka? Þú Raggi kemur með 4 ltr af vodka, 2 kassa af bjór og kannski eina hvítvín fyrir laugardagskvöldið. Ætlar þú ekki annars að vera fullur alla helgina?

Hvað má maður koma með mikinn vasapening? Það er skylda að kaupa bland í poka í shell, vettlinga í Drymlu og öl á barnum hjá Rögnu og matinn á laugardagskvöld, annað er frítt!

Hvað eru margir frímiðar í sund? Frítt í sund fyrir börn í GB, kláraðir þú nokkuð 10 bekkinn??

Hvað eru margir frímiðar í bíó? Sorrý, búið að rústa bíósalnum í FB.

Hjá hverjum sit ég í rútunni? Sorrý, Benni er að skipuleggja þetta svo það verður engin rúta, bara skokkað á milli staða.

Er ekki örugglega allt frítt? Að sjálfsögðu..

Var class of '75 í Boló ekki örugglega búin að fá lán hjá KB banka fyrir þessari helgi? Nei bara SPbol, enda er hann jafn mikið á hausnum og KB

Maður spyr sig og maður vill fá svör frá nefndinni, eða er hún kannski vanhæf um halda svona svaðalegan viðburð? Það er aldeilis trúin sem þú hefur á okkur. Við erum fullkomlega hæf um að skipuleggja svona svaðalegan viðburð, við erum bara léleg í PR-inu!

Shell á föstudag kl 18 Kostar ekki krónu með gati
Íþróttahúsið á laugardag kl 14 Kostar ekki krónu með gati
Einarshús á laugardag kl 19 Kostar 4000 kr á mann - nánar útskýrt annað kvöld!

Hlökkum til að sjá ykkur öll í víkinni fögru,
Nefndin

Friday, July 31, 2009

Styttist í stuðið!!

Jæja kæru félagar, nú er aldeilis stutt í stuðið!
Planið er enn að hittast við Shell skálann kl 18 á föstudeginum, temmilega settlega klædd, svona eins og þið væruð að fara í útilegu í Skálavík - þannig að í bakpokanum á á vera e-ð að drekka og smá snakk til að narta í um kvöldið....

....þangað til næst..

Nefndin

Friday, July 10, 2009

Vesen með komment.

Ég hef verið að lenda í veseni með að kommenta á síðuna hjá okkur. Get það oftast ekki. Veit einhver hvort þetta er eitthvað stillingaratriði eða bara að ég má ekki kommenta :)
Þetta gæti verið ástæðan fyrir því að það eru ekki svo margir sem kommenta og þá oftast sama fólkið.

Ég er annars farin að hlakka til að hitta ykkur. Þarf að finna fermingardressið, er það ekki ?! Átti maður ekki að mæta í því..........

Hvernig er það annars, stefnir í 100 % mætingu hjá okkur stelpunum ?

Kv.Anna Svandís

Wednesday, June 24, 2009

Tæpar 6 vikur í bekkjarmótið

Það er aldeilis farið að styttast í hittinginn okkar. Ekki nema tæpar 6 vikur. Við verðum komin í Víkina fögru áður en við vitum af ( þ.e. þau okkar sem eru ekki þar fyrir).

Hverjir eru að koma fyrir utan nefndina og þá sem eru búnir að kommenta ? Verður ekki þrusu mæting.

Hrabba eða Erna, eigið þið ekki einhverja myndir til að setja inn á síðuna ?

Kv.Anna Svandís

Friday, June 12, 2009

Bréf á bekkinn - allt að gerast

Jæja kæru bekkjafélagar. Hér kemur loksins bréfið sem mun vera sent út á bekkinn. Það hefur gengið erfiðlega að fá upplýsingar frá GB um þá krakka sem hafa verið með okkur í bekk þannig að endilega skrifið í commentadálkinn þau nöfn sem þið munið eftir. Einnig viljum við biðja þá sem lesa þessa síðu að kommenta á bréfið, þá þurfum við ekki að senda ykkur það líka í pósti - alltaf að spara!!!

Elsku bestu dásamlegu æðislegu bekkjafélagar.

Í tilefni þess að 20 ár (púff) eru liðin frá því að við fermdumst ætlum við að hittast í Víkinni fögru helgina 7-9 ágúst n.k

Í tilefni þessa merka viðburðar ætlum við að hóa saman öllum þeim sem eru fæddir árið 1975 og hafa e-n tímann setið í skólastofu í Bolungarvík og vonandi sjá flestir sér fært að mæta.

Dagskrá hefst á föstudeginum þar sem við ætlum að hittast án maka, og hafa virkilega gaman. Mæting er við Shell skálann kl 18 og verður stuð fram eftir nóttu, jafnvel morgni. Hér er snyrtilegur klæðnaður ekki æskilegur og sá sem mætir í fermingagallanum fær verðlaun!

Á laugardeginum ætlum við svo að hittast mis timbruð í íþróttahúsinu og fara í tarsanleik og taka börnin og makana með.
Um kvöldið endum við svo í mat og skemmtun í Einarshúsi og tökum makana með okkur og þ.a.l. verðum við mun dannaðari en kvöldið áður. Benni verður með gítarinn og Robbi og Hrabba sjá um að stýra fjöldasöng JÍHA!!!


Vonandi sjáum við sem flesta þessa daga því þetta verður svooooo gaman hjá okkur.

Endilega látið okkur vita fyrir 1. júlí hvort þið sjáið ykkur fært að mæta og endilega sendið okkur netföngin ykkar því framhaldið mun fara fram í gegnum netið.

Bestu kveðjur og hlökkum til að sjá ykkur,
Nefndin

Benni –
benni@brudkaup.is Simi 690-2302
Elísa -
elisarakel@simnet.is Simi 845-8875
Ása -
asatorleifs@hotmail.com Sími 862-2617


Fylgist svo með á síðunni
www.vikarar75-gb.blogspot.com og svo erum við nú flest á Facebook!!!

Saturday, May 23, 2009

Monday, May 4, 2009

Hvar eru allir ???

Eru allir hættir að kíkja við hérna ?
Mér finnst við verða að vera aðeins virkari og halda síðunni gangandi.
Hvað er t.d. að frétta hjá nefndinni, er farin að hlakka rosalega til að fá bréf frá ykkur :)

Kv.Anna Svandís

Thursday, April 30, 2009

20 ár!

Jæja, þá eru komin 20 ár síðan við fermdumst!
Nú auglýsi ég eftir skemmtilegum minningum frá fermingardeginum :-)
Og fékk einhver svo varanlega fermingargjöf að hún sé ennþá að virka?

Það sem ég man best eftir frá fermingardeginum var að amma og ömmusystir mín voru á milljón að moka snjóinn frá húsinu (ekki eins og mamma og pabbi hafi ekki getað gert það!) Svo hellti séra Jón messuvíni á pabba. Og svo fékk ég rosa flottar gjafir en ég á ekkert af þeim lengur held ég nema minningarnar. En ég á ennþá skræpótta vestið mitt, hárkambinn, vasklútinn og hanskana! (Og auðvitað sálmabókina sem ég syng upp úr á hverju kvöldi...)

Kveðja, Helga.

Friday, April 3, 2009

Bekkjarfundur hjá Hödda.

Jæja, við hittumst heima hjá Hödda Miðvikudagskvöldið 8. Apríl 2009.kl.20:00.
Þau sem mættu á fundin voru Höddi, Benni, Jói, Elísa, Hrafnhildur, Ása, og Anna Svandís. Við ræddum um fermingarafmælið, og ansi margt annað reyndar líka (við ætluðun eiginlega aldrei að koma okkur að verki fyrir kjaftagangi). Það var virkilega gaman hjá okkur og við sátum hjá Hödda þar til að litlu dúllurnar hans voru báðar sofnaðar í fanginu á honum. (Það er alltaf nóg að gera hjá Hödda, með fangið fullt af börnum). Við ákváðum að halda fermingarafmæli aldarinnar "MEÐ STÆL" helgina 7. - 9. Ágúst 2009. Það verður flott prógram í hjá okkur sem hefst kl. 18:00 á Föstudeginum með látum. Um miðjan dag á Laugardeginum verður fjölskylduvænt þema og á laugardagskvöldinu fá makarnir okkar að vera með okkur í mat og stuði fram eftir nóttu. Við erum með flotta hluti í huga sem við eigum eftir að fínpússa örlítið, en þið fáið öll bréf frá okkur fljótlega með meiri ipplýsingum. Við erum nokkuð viss um að það verður enginn svikin af fjörinu í víkinni þessa helgi. Við ákváðum líka að hafa uppá öllum sem hafa einhvern tíma verið í bekknum okkar, en fermdust ekki með okkur og bjóða þeim að koma og vera með. þau sem við munum eftir í fljótu bragði eru, Alma, Rósa, Dagný, Gunnar Örn, Gummi karate, Marteinn, Hilmir, og Björgmundur. Við ætlum að reyna að fá lista í skólanum. Við hittumst fljótlega eftir páska og sendum ykkur bréf fljótlega eftir það.

kveðjur úr víkinni.
Elísa.

Skíðaferðalag 1989

Erna og Martha í góðum fíling!!


Strákarnir að hlæja af Jónatani:) sem var kominn í fullt af fötum.


1989

Anna Svnadís hress á kantinum

Ég og Ása:) Skil ekki útaf hverju við vorum ekki fengnar í kókómjólk auglýsingar.


þessi mynd er tekin í þemaviku 1989, Þórir að minna fólkið á nafnið hans:)
Kv. Hrabba

Myndir

Þessi er tekin í einhverju þema 1989


Upp með stuðuð og gömlu myndirnar:)

Jæja gott fólk, nú er kominn tími til að fara að hita upp og grafa upp gamlar myndir, ég er búin að liggja hér í krampa og stelpurnar mínar eiga ekki til orð yfir hvað við voruð hallærisleg:)

Thursday, March 26, 2009

Afmæli

Til hamingju með afmælið Svanborg
Kv.Anna Svandís

Sunday, March 22, 2009

Afmæli afmæli

Til hamingju með daginn í gær Rakel og til hamingju með daginn á morgun Benni.

Kv.Anna Svandís

Tuesday, March 17, 2009

Smá getraun ....

Þetta mikla ljóð fannst í skriftarbók síðan í 5. bekk.

Að sigra heiminn er mikill vandi
Mig vantar bara krafta.
Ég fór til galdranornar,
hún gaf mér fulla skeið af kattasandi.
Að éta hann var eins og að hanga í bandi.
Já, að sigra heiminn er mikill vandi.

Og spurningin er; hver samdi þetta?
Vísbending, 3 höfundar ...

Já, og koma svo!

Lausnamiðaðar hugsanir...

Mig langaði að vekja athygli á þessu innleggi frá Róberti Daníel:

Mig langar samt að koma með hugmynd um hvort ekki sé hægt að reyna að hittast einhverja aðra dagsetningu sem flestir væru sáttir við og mynda góða stemningu í kringum hana. Veit ekki hvað hefur verið rætt en hvernig væri það? Þeir sem vilja, mæta þá bara líka á þessa góðu daga í Víkinni fögru! Mig langar að hitta ykkur ÖLL og þætti gaman ef það yrði reynt eins langt og það nær. Ég skora að nefndina að kanna þetta. Búa til lista yfir okkur öll bekkjarsystkynin einhver tekur að sér hringja út og klárum þetta fyrir síðasta lagi 1. apríl og reynum að gera þetta skemmtilegt. Við erum með brekkusöngvarann og marga aðra góða skemmtikrafta ;-) Svo væri hópurinn ekki eins í sundur eins ég held að hann verði Markaðshelgina eða Sjómannadaginn.Bara hugmynd. Sjáumst hress!
Kveðja, Róbert Daníel

Ef einhver hljómgrunnur er fyrir þessari hugmynd þætti mér viskulegast að draga af handahófi einhverja helgi á ákveðnu tímabili. (Helst samt innan hefðbundins sumarleyfistímabils). Þá koma bara þeir sem komast, og no hard feelings.

Kv. Helga.


Markaðshelgin : Erna, Robbi D, Svanborg, Anna , Hrabba, Helga, Raggi I, Martha. Samtals 8

Sjómannadagshelgin : Elísa, Ásrún, Jói.
Samtals 3

Alveg sama: Höddi, Benni , Ása
Samtals 3

Kemst ekki : Jónatan.
Samtals 1

Hafa ekki tjáð sig en fengu sms um kosninguna : Atli, Hálfdán, Robbi H, Ragnheiður, Rakel.
Samtals 5

Veit einhver um Ragga A, hvort hann viti af þessu ?

Þetta eru samtals 21. Vonandi er ég ekki að gleyma einhverjum.

ASG

Sunday, March 15, 2009

Það er nú ekki á fólk leggjandi...

... að velja hvort það vilji djamma með mér eða Jóa Egils! Ég legg til að nefndin komi saman og kasti krónu upp á hvor helgin verður fyrir valinu. Það er móralskt besta leiðin sýnist mér.
Kv. Helga.

Friday, March 13, 2009

Afmælisbarn dagsins

Til hamingju með afmælið Ásrún, vonandi áttu góðan afmælisdag.
Maður man enn einhverja afmælisdaga, ekki slæmt það :)
Kv.Anna Svandís

Sunday, March 8, 2009

Hvor helgin er það???

Nú er að drífa í þessu og allir að kommenta. Hvor helgin hentar ykkur fyrir fermingarafmælið sjómannadagshelgi eða markaðshelgi?

Koma svo..............svo nefndin ógurlega geti farið að skipuleggja :-)

Vestfjarðarnefndin

Hvað væri lífið án lita?

1) Svart/hvítt
2) Leiðinlegt
3) Litlaust
4) Krókódíll

Og svo breytum við þessu bara í diskótek, er það ekki? :-)

Kv. Helga.

Þá er að byrja að blogga.

Bloggsíðan stofnuð og þá er að byrja að blogga.