Wednesday, June 24, 2009

Tæpar 6 vikur í bekkjarmótið

Það er aldeilis farið að styttast í hittinginn okkar. Ekki nema tæpar 6 vikur. Við verðum komin í Víkina fögru áður en við vitum af ( þ.e. þau okkar sem eru ekki þar fyrir).

Hverjir eru að koma fyrir utan nefndina og þá sem eru búnir að kommenta ? Verður ekki þrusu mæting.

Hrabba eða Erna, eigið þið ekki einhverja myndir til að setja inn á síðuna ?

Kv.Anna Svandís

9 comments:

  1. Það hlýtur að vera hægt að bjarga einhverjum myndum fljótlega.
    Ásrún mætir allavega - var á fótboltamóti hér um helgina. Sagðist alltaf gleyma að fara inn á þessa síðu en það vissu það nú líklegast allir að hún kæmi!
    -Erna

    ReplyDelete
  2. Við hjónaleysin mætum :)
    Hvað tekur langan tíma að keyra frá rvk til bol?

    Kv. Helga.

    ReplyDelete
  3. Sæl öll, var örugglega búin að segja að ég komi ekki, er í Kólumbíu núna eins og sennilega margir vita að sækja yndislega dóttir mína, og er búin að vera hér í 2 vikur af þeim 6 sem við verðum hér. Áætlaður heimferðartími er allavegna 26 júlí. Eftir það tekur við hvíld og samvera með fjölskyldunni :)
    Helga, tíminn sem það tekur að aka frá rvk til bol er algjörlega háður hraðanum.
    Endilega verið dugleg að setja inn fréttir hérna, kíki hérna inn reglulega
    Góða skemmtun og takk fyrir kveðjuna Erna.
    Atli Freyr

    ReplyDelete
  4. Til hamingju með dóttur ykkar Atli og Jana. Vonandi gengur allt vel hjá ykkur.
    Helga ég skal fara yfir landakortið með þér eitthvað kvöldið yfir góðu glasi :)
    Kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  5. Elsku Atli og Jana, nýbakaðir foreldrar. Til hamingju með dóttur ykkar, ég er mjög glöð fyrir ykkar hönd, veit að þið hafið beðið lengi eftir þessari stund.
    kv Elísa.

    Til ykkar hinna. Hlakka til að sjá ykkur í Ágúst.

    ReplyDelete
  6. Nú sko, ég er þroskaþjálfi en ekki eðlisfræðingur og hef enga færni í að reikna út ferðatíma miðað við hraða og kílómetrafjölda... hins vegar er ég mjög góð í að útbúa sjónrænt skipulag fyrir einhverfa :D
    Eins gott að náttúrufræðinördið fari yfir þetta með mér við tækifæri!

    Innilega til hamingju með dótturina Atli :-)

    Kv. Helga.

    ReplyDelete
  7. Innilega til hamingju með dóttir ykkar Atli! Gangi ykkur vel!

    Kv, Róbert Daníel

    ReplyDelete
  8. Ég kem, er búin að panta og hlakkar rosalega til að sjá ykkur öll...

    ReplyDelete
  9. Dásamlegt Svanborg!!!
    Kv. Helga.

    ReplyDelete