Friday, July 10, 2009

Vesen með komment.

Ég hef verið að lenda í veseni með að kommenta á síðuna hjá okkur. Get það oftast ekki. Veit einhver hvort þetta er eitthvað stillingaratriði eða bara að ég má ekki kommenta :)
Þetta gæti verið ástæðan fyrir því að það eru ekki svo margir sem kommenta og þá oftast sama fólkið.

Ég er annars farin að hlakka til að hitta ykkur. Þarf að finna fermingardressið, er það ekki ?! Átti maður ekki að mæta í því..........

Hvernig er það annars, stefnir í 100 % mætingu hjá okkur stelpunum ?

Kv.Anna Svandís

8 comments:

  1. Þeir sem eru ekki með g-mail account eða blogger geta valið Anonymous í "Comment as:" Svo þarf að setja inn kóðann sem kemur, einhverra hluta vegna virkar það aldrei í fyrsta skipti hjá mér svo ég þarf að gera tvisvar.

    Kv. Helga.

    ReplyDelete
  2. Prófa g-mail aðgang.
    Vonandi gengur þetta.
    kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  3. Þeir sem eru ekki með g-mail aðgang geta notað : vikarar75 og flottust
    kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  4. Þarf líka alltaf að setja inn 2x - en anonymous virkaði hvorki í morgun né fyrir helgi.
    Var búin að lofa einhverjum myndum á síðuna en nenni ekki að skanna heima og gleymi alltaf að taka með myndir í vinnuna þannig að ...Sjáum til þegar fer að rigna í vikunni.
    Kv. Erna

    ReplyDelete
  5. Ég skal reyna að gera þetta fyrir þig elskan mín þegar ég hef tíma osfrv.. ;-)

    RDJ

    ReplyDelete
  6. Ég mæti maður einsamall! Lendi á flugvellinum í Boló klukkan 15:00, treysti svo á það að Benson nái í mig og hlaupi með mig að Shell skálanum ;)
    Hlakka mikið til að sjá ykkur öll.

    Kveðja
    Raggi Ingvars

    ReplyDelete
  7. Ef einhver með laust sæti í bíl vestur á þriðjudeginum eða miðvikudeginum fyrir fermingarmót? Þá væri ég til í að fá að fljóta með.
    Kv. Svanborg

    ReplyDelete
  8. Thanks and I have a neat present: kitchen facelift

    ReplyDelete