Tuesday, March 17, 2009

Lausnamiðaðar hugsanir...

Mig langaði að vekja athygli á þessu innleggi frá Róberti Daníel:

Mig langar samt að koma með hugmynd um hvort ekki sé hægt að reyna að hittast einhverja aðra dagsetningu sem flestir væru sáttir við og mynda góða stemningu í kringum hana. Veit ekki hvað hefur verið rætt en hvernig væri það? Þeir sem vilja, mæta þá bara líka á þessa góðu daga í Víkinni fögru! Mig langar að hitta ykkur ÖLL og þætti gaman ef það yrði reynt eins langt og það nær. Ég skora að nefndina að kanna þetta. Búa til lista yfir okkur öll bekkjarsystkynin einhver tekur að sér hringja út og klárum þetta fyrir síðasta lagi 1. apríl og reynum að gera þetta skemmtilegt. Við erum með brekkusöngvarann og marga aðra góða skemmtikrafta ;-) Svo væri hópurinn ekki eins í sundur eins ég held að hann verði Markaðshelgina eða Sjómannadaginn.Bara hugmynd. Sjáumst hress!
Kveðja, Róbert Daníel

Ef einhver hljómgrunnur er fyrir þessari hugmynd þætti mér viskulegast að draga af handahófi einhverja helgi á ákveðnu tímabili. (Helst samt innan hefðbundins sumarleyfistímabils). Þá koma bara þeir sem komast, og no hard feelings.

Kv. Helga.

39 comments:

  1. Ef það á að fara að kanna af einhverri alvöru hvað ÖLLUM finnst, væri þá ekki athugandi að fá frá öllum upplýsingar um það hvenær þeir komast EKKI? Planaðar helgar eru oft færri en óplanaðar, og hver veit nema kanski fyrir eitthvert kraftaverk eru kanski einhverjar helgar sem enginn er upptekinn,og þá væri hægt að velja úr þeim.Nei, ég bara spyr svona ef það á að fara að tala við allt fólkið á annað borð.Margir fara ekki að plana sumarið af alvöru fyrr en í Apríl og 1. Apríl gæti eins og Róbert Daníel nefndi verið góð "deadline". Ég get sagt fyrir mig að núna eru bara 2 helgar sem ég get ekki mætt, en það er markaðshelgin og helgin á eftir henni.Geri samt ráð fyrir því að fara að plana einhver ferðalög fljótlega í Apríl.En ef það er engin helgi laus hjá öllum væri hægt að draga um t.d þær 2-3 helgar sem fæstir eru uppteknir. Bara hugmynd. ég var búin að finna síma og heimilisföng hjá flestum í Október. Svo var annað okkur hér í víkinni lagaði að bjóða öllum sem hafa einhvern tíma verið í bekknum. Hvað fynnst ykkur? kv. Elísa. ps.góð málamiðlunartillaga Róbert.

    ReplyDelete
  2. Svo finnst mér nauðsynlegt að ná í fólkið sem hefur ekki sagt sína skoðun og heyra hvað því finnst, þá bara í gegnum gamla góða símann.

    Varðandi aðra dags. þá væri ég hugsa þetta þannig að hún yrði að sjálfsögðu að gefa jákvæðari niðurstöðu heldur en Markaðshelgin sem er greinilega ofan á eins og er.

    Gott væri að setja upp lista hverjir koma alls ekki og strika þá út og svo reyna við jákvæðari niðurstöðu eins og segi.

    Kannski bara rugl í mér en væri gaman að reyna.

    Kv, Róbert Daníel

    ReplyDelete
  3. Vær greinilega að skrifa á sama tíma og þú Elísa. Já væri ekki sniðugt að vera bara með 2-3 helgar fyrir framan sig og athuga það í gegnum síma og merkja við hverjir komast hvenær og sjá hvað kemur út úr því. Seint í ágúst og jafnvel sept. gæti verið sniðugt því þá róast hjá öllum og oft mjög gott veður þá ef ég man rétt.

    Skoðum þetta. Þú ert með listann Elísa, nú er bara hringja og ekkert kjaftæði. Þá er það bara frá og við sjáum þá niðurstöðuna út úr því máli.

    Kv, Róbert Daníel

    ReplyDelete
  4. mér líst ágætlega á ágúst eða sept. veit að t.d líst Rakel best á það. En það er bara spurning með þá sem eiga börn í skóla og þurfa að koma annarsstaðar frá.
    ´Eg er byrjuð að hringja og athuga hvaða helgar eru uppteknar hjá fólki og ætla að sjá hvort það er einhve helgi í sumar sem er laus hjá öllum. (það kostar ekkert að gá að því.)
    k. Elísa.

    ReplyDelete
  5. Það er nú í góðu lagi þó að börnin séu byrjuð í skóla. Við erum að tala um helgarferð ;-)

    Flott hjá þér að hringja út, þú átt hrós skilið fyrir það!

    Róbert Daníel

    ReplyDelete
  6. folk virðist almennt nokkuð sátt með haustið ( byrjun sept) sem ég er búin að ná í. Elísa

    ReplyDelete
  7. Ég get sætt mig við byrjun sept og konan auðvitað líka þar sem ég ræð á mínu heimili :-) hehehe Tvö atkvæði komin þar í hús.

    Róbert Daníel

    ReplyDelete
  8. Dagskráin sem við vorum með í huga um dagin virkar mjög vel hvaða helgi sem er. Við vorum orðin ansi spennt fyrir henni, og hún ætti að virka vel fyrir alla.

    ReplyDelete
  9. gleymdi nafninu mínu aftur.(er orðin vön facebook þar sem fésið á manni kemur með commentinu.)kv. Elísa.

    ReplyDelete
  10. Haustbyrjun leggst mjög vel í mig. Gott að sjá umræðuna svona jákvæða :-)
    Kv. Helga.

    ReplyDelete
  11. Líst rosalega vel á þetta og flott málamiðlun hjá Robba, það hefur greinilega þurft að reyna oft á þessa hæfileika hans í hjónabandinu :-)
    Ég veit líka Robbi að þú ræður öllu á heimilinu....hm hm

    Kv. Ása

    ReplyDelete
  12. Bara til að flækja málin, en er eitthvað um að vera í víkinni þá, ss eitthvað annað en hittingur, ss ball eða skemmtanir? (það er nú samt skemmtun í sjálfu sér að hitta ykkur ;)
    Ég kæmist í águst, en svoldið erfitt í sept þar sem skólinn er byrjaður aftur hjá mér, (já ég veit, er enn í skóla...barnaskapurinn í manni;)
    KV. Svanborg

    ReplyDelete
  13. Takk Ása :-)

    Þú ert að koma frá öðru landi Svanborg og tilbúin að leggja á þig ferðalagið þannig að mér finnst það virðingarvert. Ég er til líka seint í ágúst.

    Hvernig gengur að hringja Elísa? Einhverjar nýjar tölur komnar í hús.....

    ReplyDelete
  14. Gleymdi...þetta var Róbert Daníel að skrifa síðast.

    ReplyDelete
  15. Ég er búin að ná í Benna, Rakel,Ásrúnu, Ragnheiði,Hödda, Ásu, Hálfdán og Mörthu.Þau tóku öll vel í þetta og voru öll opin fyrir haustinu. Það var enginn sem sagðist frekar vilja Sept, en Ágúst, svo það ætti alveg eins að ganga í Ágúst heyrist mér. Ása ætlaði að hringja í Önnu, Ernu (sem Robbi er búinn að svara fyrir), Helgu, Hrafnhildi og Svanborgu.
    Ég er ekki búin að ná í Atla(slökkt á símanum),Jóa,Jónatan(ætla að skrifa honum á fésinu), Ragga.A.(talaði inn á talhólf hjá honum),Ragga.I.(svaraði ekki, reyni aftur),Róbert.H.(konan hans tók skilaboð), og Þórir er á canary.(ætla að reyna fésið, annars sit ég um hann þegar hann kemur til landsins). Éigum við ekki annars að láta fermingarsystkynin duga í fyrstu atrennu og bjóða svo hinum þegar við höfum dagsetningu?
    Við erum 30 manns sem ég hef í kollinum. ? hvað við erum mörg á skrám í skólanum.
    ég læt vita þegar ég hef talað við fleiri.
    k. Elísa.

    ReplyDelete
  16. Ég held að lok ágúst og byrjun sept. sé í lagi mín vegna.
    Finnst að við ættum að reyna að taka tillit til þeirra sem eru að koma langt að og reyna að hafa þetta helgi sem hentar þeim.
    Kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  17. Flott Elísa!! Þá er þetta allt að ganga bara vel upp sýnist mér. Jú sammála láta fermingarsystkynin duga í bili, að minnsta kosti ákveða dagsetningu út frá þeim.

    Kv, Róbert Daníel

    ReplyDelete
  18. Elísa! Það er ég sem svara fyrir Robba en ekki hann fyrir mig - ekki taka mark á bullinu í Ásu, hún man aldrei neitt stundinni lengur og greinilega alveg búin að gleyma hver ræður heima hjá mér:-D. En ég leyfi honum að ráða í þetta sinn.
    Mér líst þrælvel á fyrstu 3 helgarnar í ágúst, eftir það fara skólar að byrja...
    kv. EBJ

    ReplyDelete
  19. Þetta hljómar allt vel út hjá ykkur, "You go girls" (Og Robbi ;)

    ReplyDelete
  20. Jæja, ég er búin að heyra frá Atla, Jóa og Jónatan. Atla líst vel á haustið, en er upptekinn 23.-27. Ágúst. Jói veit ekki betur en hann verði heima á þessum tíma. Jónatan er ekki með planaða ferð til landsins í ár, en segir að það gæti alveg verið að hann þurfi að koma eitthvað vegna vinnunar og muni þá reyna að stíla það inn á okkur ef hann getur.
    Ok það sem ég er búin að komast að hingað til er eftirfarandi. Benni er upptekinn á verslunarmanna helgini og helgini þar á eftir.
    Ásrún kemur heim úr vetvangsnámi Ca.10.Ágúst. Erna vil hafa þetta áður en skólarnir byrja.
    Svanborg byrjar í skólanum um mánaðarmót skilst mér. Atli er upptekinn 23.-27. Ágúst. Aðrir hafa ekki látið vita með neina daga í haust sem eru slæmir hjá þeim. Þannig að eins og málin standa núna þá er helgin 14.-16. Ágúst mjög álitleg og virðist ansi "vænleg til vinnings". Við eigum eftir að heyra frá
    Ragga Ingvars (sem er alltaf með slökkt á símanum, þegar ég hringi alla vega),Ragga Arngríms (sem er ekki búin að hringja til baka ennþá),Róberti Hjörleifs (sem er ekki búin að hringja til baka í mig),Þóri (sem er enn á canary og ekki búinn að svara á fésinu), og Hrafnhildi (en Ása ætlaði að tala við hana og ég náði ekki í Ásu áðan).Allir sem ég hef heyrt í virðast bara ansi spenntir fyrir þessari hugmynd. Verðum í bandi.
    Kv. Elísa vongóða í víkinni fögru.

    ReplyDelete
  21. Ég kemst þessa helgi.
    Kv Hrabba

    ReplyDelete
  22. Glæsilegt! Nenniði samt að byrja ekki fyrr en seinnipartinn á föstudeginum því ég þarf að vera á Reyðarfirði fimmtudaginn 13. :D
    Kv. Helga.

    ReplyDelete
  23. ok. þá vantar bara að heyra í "Röggunum",Robba H, og Þóri. Vonandi verða þeir sáttir og þá erum við kanski bara "good to go".

    ReplyDelete
  24. Helgin 14.-16. ágúst er flott! Við hlustum ekki meira á Helgu hinsvegar :-) Hún verður bara að mæta seinniparts föstudags. Ef ég man dagskránna rétt þá á að raða í stærðarröð fyrripart föstudags og því væri bara best að mæta bara um kvöldið þar sem hún getur drukkið hænuhausa eins og mig undir borð. GRÍN!! hehehehe

    Benni var búinn að hitta Ragga A veit ég.

    Glæsilegt Elísa!

    Kv, Róbert D

    ReplyDelete
  25. jæja ég er búin að senda Ragga Ingvars póst á fésinu og bað hann að commenta hér inn. Sjáum svo bara hvað hann gerir. Ég veit að Þórir kemur til landsins á míðvikudaginn.Svo ætla ég að gera aðra tilraun til að ná í Robba Hjölla. kv. Elísa.

    ReplyDelete
  26. Ég fer létt með að drekka þig undir borð og stól Robbi enda hef ég þá allt sumarið til að æfa mig!

    Helga.

    ReplyDelete
  27. Ég mæti í ágúst, hefði samt frekar viljað markaðshelgina sko.

    Kveðja
    Raggi Ingvars sími 895-3517 og alltaf kveikt á honum ;)

    ReplyDelete
  28. Mér líst vel á þetta Helga :-)

    Þú ert að sjóða þetta saman Elísa , glæsó!

    Raggi kveiktu á helv... símanum ég var að reyna að ná í þig!!!! Er ekki ennþá S: 7335

    Kv, Róbert D

    ReplyDelete
  29. Robbi ertu að fara að panta þér vinnusamfesting :)
    kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  30. Robbi, er ekki ennþá búið að taka í notkun sjö stafa símanúmer á Blönduósi? ;) Það er ekki nema von að þú náir ekki í neinn ;)

    Kveðja
    Raggi Ingvars
    Sími 895-3517, ég endurtek 895-3517 ( sem sagt 7 stafa númer ). Einnig er hægt að ná í mig í gegnum netfangið ragnar@margtsmatt.is og ragnaringvars@hotmail.com

    ReplyDelete
  31. hehehehe+ Gott númer hjá þér Raggi, til hamingju með það ;-)

    Ég var líka alltaf að senda póst á þig á þetta email: ragnaringvars@hotmale.com mér fannst það eitthvað svo líklegt að þú værir með það sykurpúðinn minn :-)

    ReplyDelete
  32. Já, ok Raggi minn ég skil af hverju þú svarar aldrei í símann þegar ég hringi. Ég var að hringja í 699-0070.Ég fékk það upp þegar ég var að þefa ykkur öll uppi í haust.Ekki veit ég hvers vegna ég endaði með vitlaust númer. Kanski eins gott að það var þá alltaf SLÖKKT, frekar en að það svaraði ekki, annars væri eitthvað grey úti í bæ með Ca. 10-15 MISSED CAllS frá mér og væri kanski hrædd/ur um að ég væri að STOKKERA sig.hehehe. Er annars einhver ykkar í sambandi við Robba Hjölla? Ég skildi eftir skilaboð hjá konuni hans um daginn og bað um að hann hringdi í mig, veit ekki hvort hún var eitthvað ekki að skilja mig, eða hvort Robbi er kanski bara ekki að nenna að tala við mig. :0( Svo var ég að fatta að við þurfum ekkert að bíða eftir Þóri, hann var búinn að setja þetta í hendurnar á okkur um daginn þar sem hann verður að vinna erlendis í sumar og kemur bara heim einu sinni í mánuði og veit ekki enn hvenær það verður. Ágúst hlýtur að vera þar með. Getur einhver talað við Robba t.d þú Raggi. Ég ætla samt að prufa að senda honum sms líka. Annars er ég að fara suður og kem ekki heim fyrr en 2. Apríl. Ég er að pæla hvort þið ykkar sem eruð hér fyrir vestan vilji ekki bara kýkja í kaffi til mín Laugardaginn 4. Apríl kl. 15:00, svo við getum farið að plana þetta allt saman. Eru ekki annars allir sáttir við helgina 14.-16. Ágúst. Kveðjur frá höfuðstöðvum "BRJÁLAÐA GENGISINS" í víkinni fögru. ERJ.

    ReplyDelete
  33. Þetta er að verða ansi flott! Legg til að Elísa og Robbi minn verði bara æviráðin í að koma liðinu saman hér eftir - þau hvort sem er reka allar nefndir og taka málin í eigin hendur :-) (og ég er alltaf mjög fegin þegar einhver annar nennir að gera þetta en ég....)
    kv.Erna

    ReplyDelete
  34. elísa farðu nú að hafa þessa fundi á öðrum dögum enn þegar ég er á vakt.. =kemst ekki út í vík á laugardag kv.???
    ps svo er auðvitað miklu skemmtilegra að skemmta sér með mér

    ReplyDelete
  35. Ekki málið Jói minn? við finnum út úr fundardegi þegar ég kem að sunnan.Kem vonandi á fimmtudag. Hvernig væri að ég hringi bara í ykkur sem eruð fyrir vestan þegar ég er komin heim og við finnum góðan tíma sem allir geta komið? kv Elísa.

    ReplyDelete
  36. Skora á þig Elísa að blogga hér fyrir ofan. Þetta er orðinn svo langur kommentadálkur :)
    Kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  37. Já, væri fínt að fara fá einhverja niðurstöðu í nýja færslu, þessi er að springa
    -EBJ

    ReplyDelete
  38. Ég stefni á að ná sem flestum saman á fund á næstu dögum, og blogga þá um það sem fram fer á fundinum. Geri ráð fyrir því að hringja út í liðið á morgun. Ég var að koma heim núna eftir viku fyrir sunnan og er LÖT og ÞREYTT í dag. kv Elísa.

    ReplyDelete