Tuesday, March 17, 2009

Smá getraun ....

Þetta mikla ljóð fannst í skriftarbók síðan í 5. bekk.

Að sigra heiminn er mikill vandi
Mig vantar bara krafta.
Ég fór til galdranornar,
hún gaf mér fulla skeið af kattasandi.
Að éta hann var eins og að hanga í bandi.
Já, að sigra heiminn er mikill vandi.

Og spurningin er; hver samdi þetta?
Vísbending, 3 höfundar ...

Já, og koma svo!

6 comments:

  1. Erna, Martha, Helga ?
    Kv.ASG

    ReplyDelete
  2. Ég ætla að giska á Atla, Mörthu og Benna

    Kv, Róbert D

    ReplyDelete
  3. Og Höddi vann!!!
    Anna og Robbi fá falleinkunn - Anna hefur séð þessa getraun áður og Robbi hefur sama aðgang að þessari skriftarbók og ég :-)

    Kv. Erna

    ReplyDelete
  4. Ég fæ samt stig fyrir að taka þátt. Auðvitað gaf ég ekki rétt svar strax, gera þetta spennandi. kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  5. Vá...og ég gat svindlað og nýtti mér það ekki, FRÁBÆRT! :-)

    Kv, Róbert D

    ReplyDelete