Jæja, þá eru komin 20 ár síðan við fermdumst!
Nú auglýsi ég eftir skemmtilegum minningum frá fermingardeginum :-)
Og fékk einhver svo varanlega fermingargjöf að hún sé ennþá að virka?
Það sem ég man best eftir frá fermingardeginum var að amma og ömmusystir mín voru á milljón að moka snjóinn frá húsinu (ekki eins og mamma og pabbi hafi ekki getað gert það!) Svo hellti séra Jón messuvíni á pabba. Og svo fékk ég rosa flottar gjafir en ég á ekkert af þeim lengur held ég nema minningarnar. En ég á ennþá skræpótta vestið mitt, hárkambinn, vasklútinn og hanskana! (Og auðvitað sálmabókina sem ég syng upp úr á hverju kvöldi...)
Kveðja, Helga.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Ég fékk ritvél í fermingargjöf !!! Hún fer bráðum á þjóðminjasafnið. Fékk líka 5 lampa og 3 hárblásara ( einn enn heima hjá mömmu og einn nýdáinn). Keypti mér svo þvottavél og þurrkara fyrir fermingarpeningana..... samt ekki strax eftir fermingu.
ReplyDeleteKv.Anna Svandís
Já, til hamingju öll :-)
ReplyDeleteÉg á ennþá rússkinsdraktina, hárkambinn og nethanskana - hver veit nema að maður láti sjá sig í dressinu í sumar (ok, þetta var fyrir 20 árum og vel 20 kg. síðan.....).
Ég á enn bakpoka og eitthvað glingur (lampa, vasa, skartgripi) en annað er farið og búið að vera.
-Erna