Friday, April 3, 2009

Bekkjarfundur hjá Hödda.

Jæja, við hittumst heima hjá Hödda Miðvikudagskvöldið 8. Apríl 2009.kl.20:00.
Þau sem mættu á fundin voru Höddi, Benni, Jói, Elísa, Hrafnhildur, Ása, og Anna Svandís. Við ræddum um fermingarafmælið, og ansi margt annað reyndar líka (við ætluðun eiginlega aldrei að koma okkur að verki fyrir kjaftagangi). Það var virkilega gaman hjá okkur og við sátum hjá Hödda þar til að litlu dúllurnar hans voru báðar sofnaðar í fanginu á honum. (Það er alltaf nóg að gera hjá Hödda, með fangið fullt af börnum). Við ákváðum að halda fermingarafmæli aldarinnar "MEÐ STÆL" helgina 7. - 9. Ágúst 2009. Það verður flott prógram í hjá okkur sem hefst kl. 18:00 á Föstudeginum með látum. Um miðjan dag á Laugardeginum verður fjölskylduvænt þema og á laugardagskvöldinu fá makarnir okkar að vera með okkur í mat og stuði fram eftir nóttu. Við erum með flotta hluti í huga sem við eigum eftir að fínpússa örlítið, en þið fáið öll bréf frá okkur fljótlega með meiri ipplýsingum. Við erum nokkuð viss um að það verður enginn svikin af fjörinu í víkinni þessa helgi. Við ákváðum líka að hafa uppá öllum sem hafa einhvern tíma verið í bekknum okkar, en fermdust ekki með okkur og bjóða þeim að koma og vera með. þau sem við munum eftir í fljótu bragði eru, Alma, Rósa, Dagný, Gunnar Örn, Gummi karate, Marteinn, Hilmir, og Björgmundur. Við ætlum að reyna að fá lista í skólanum. Við hittumst fljótlega eftir páska og sendum ykkur bréf fljótlega eftir það.

kveðjur úr víkinni.
Elísa.

17 comments:

  1. Til hamingju Elísa, tókst :)
    Hlakka til að heyra frá fundinum. Aldrei að vita nema ég kíki yfir til þín, rúlla vonandi í bæinn kl.20:00
    Kv.Anna Svaandís

    ReplyDelete
  2. Hæ hæ ég verð komin í víkina, væri gaman að fá að vera með og hitta ykkur.
    kv Hrabba

    ReplyDelete
  3. Stefnir í gott for-bekkjarparty :)
    kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  4. JÁ, því fleiri því betra. Þeir sem eru á svæðinu eru að sjálfsögðu velkomnir.

    ReplyDelete
  5. Borgar sig að senda Mörthu bara flöskuskeyti, hún svarar aldrei síma eða tölvupósti :-)

    -Erna

    ReplyDelete
  6. Ég skal bjalla í Mörthu, hún svarar mér alltaf!!

    ReplyDelete
  7. Ég kem annað kvöld en Martha kemst ekki, hún er að fara skemmta sér með gamla fólkinu, þ.e hlusta á kallinn sinn syngja með MÍ kvartettinum á Edinborg.
    Kv, Ása

    ReplyDelete
  8. Endilega að setja svo fundargerðina inn,
    svo maður geti fylgst með.
    Farið ykkur ekki að voða og góða skemmtun :)

    Er fundurinn kannski búinn.
    atli

    ReplyDelete
  9. Á hvaða tímabelti er þetta blog.....

    ReplyDelete
  10. O SHIT, ég var búin að segja að ég kann ekkert á þetta dót. Ég veit ekki hvernig ég fór að því , en mér tókst að blogga yfir gamla bloggið mitt og eyða hinu út.EN mér til varnar þá er það bara þannig að ef það er klaufaskapur, þá GET ÉG ÞAÐ. Ef það er einhver sem kann að laga þetta eftir mig, þá endilega gerið það. Kveðja. Elísa
    (A.K.A. KLAUFINN.)

    ReplyDelete
  11. Ánægður með þetta, við hjónin mætum ;-)

    kv, Róbert D

    ReplyDelete
  12. Hvað með Símon? Eru allir búnir að gleyma honum, eða??
    Man ekki eftir fleirum en eru taldir upp, lýst vel á þetta allt saman
    Kv. Erna

    ReplyDelete
  13. Elísa hvað er netfangið hjá þér ?
    Var að skoða mitt plan og þessi helgi hentar ekkert rosalega vel fyrir mig :(
    kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  14. Hvernig bloggar maður hérna?

    ReplyDelete
  15. Skráir þig inn og skrifar svo :) Ertu ekki með notendanafnið og lykilorðið ?
    kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  16. Flott hjá ykkur krakkar...
    Ég stefni á að koma, er að líta á flug um þetta leiti. Hlakka rosa til að sjá ykkur ;)

    ReplyDelete
  17. Hver er þá lokaniðurstaðan? Hvenær verður hittingurinn....markaðsdagshelgin?

    ReplyDelete