Monday, May 4, 2009

Hvar eru allir ???

Eru allir hættir að kíkja við hérna ?
Mér finnst við verða að vera aðeins virkari og halda síðunni gangandi.
Hvað er t.d. að frétta hjá nefndinni, er farin að hlakka rosalega til að fá bréf frá ykkur :)

Kv.Anna Svandís

13 comments:

  1. Það er aðallega að frétta af okkur að Ása ætlaði að hafa næsta fund, sem verður örugglega fljótlega. Ég er búin að gefast upp á að reyna að blogga hérna, þar sem þetta er sett upp á einhvern flókinn hátt sem bara nokkrir fatta. Ég bloggaði 2svar um daginn og það tók heila eilífð og ég skil ekki ennþá hvernig það gerðist, en seinna bloggið mitt kastaði því fyrra út. Ég sá að Höddi var ekki alveg að fatta þetta heldur, svo þetta er kanski ekki alveg eins auðskilið og þú heldur Anna mín. Spurning um að fara að hafa "bloggnámskeið" fyrir okkur hérna í "sveitinni". hehe. Ása ef þú sérð þetta þá verð ég með tvö af börnunum mínum í kirtlatöku núna um helgina, en er annars laus flest kvöld og flestar helgar. kv. Elísa.

    ReplyDelete
  2. Jú jú Elísa þetta er ekkert mál. Ferð í sign in efst í hægra horninu, skráir þar notendanafnið og lykilorðið, þegar þú ert komin inn veluru new post á miðri síðunni, bloggar og velur publish post.
    Ég skora á þig að reyna einu sinni enn :)
    En ef fólk vill ekki blogga þá getur það kommentað líka :)
    kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  3. Ég skal hafa fund í næstu viku,ég er hrikalega upptekin fram yfir helgina. Hvað segið þið stjórnarmenn um miðvikudaginn 13.maí heima hjá mér. Þá verða krakkarnir þínir vonandi farnir að ná sér eftir aðgerðina Elísa.
    Ég get þá haft smá sýnikennslu í hvernig á að blogga, tel mig kunna það þó svo að ég sé nú ekki virk hérna ;-)
    Kv. Ása

    ReplyDelete
  4. Þórir HeiðarssonMay 5, 2009 at 1:17 PM

    Hæ veit að ég hef nú ekki verið sá duglegasti hér á þessari síðu en sá að ég hafði víst gleymst þarna í upptalningu ég fermdist víst samt með ykkur ;) he he he En ég veit ekki alveg hvenær ég verð á landinu í sumar en þegar dagsetningin er komin endilega látið mig vita og ég kem ef ég verð á landinu :)

    ReplyDelete
  5. Þeir voru bara taldir upp sem fermdust ekki með okkur en voru með okkur í bekk einhverntímann - þannig að þú ert ekki gleymdur Þórir :-). Voru meira að segja einhverjar færslur frá Elísu þar sem hún reyndi mikið að ná í þig.
    En það er að koma skrið á þetta hjá okkur. Þetta verður bara gaman ...
    kv. Erna

    ReplyDelete
  6. Elsku Þórir. Það er komin dagsetning. Eins og kemur fram í færslunni " bekkjarfundur hjá Hödda", þá verður brjálað stuð í víkinni helgina 7.-9. Ágúst n.k. Fjörið byrjar um kl 18.00 á föstud þar sem við munum hrynja í það (bara bekkurinn, ekki makar). um miðjan dag á laugardegi hittumst við í íþróttahúsinu með börn og maka, og á laugardagskvöldi verður matur og djamm með mökum. Það kemur bréf með betri upplýsingum fljótlega eftir næsta fund, sem verður líklega í næstu viku. Plíííís reyndu að vera á landinu. Ef þú skoðar gamlar færslur og commentin þar þá hefur þú verið nefndur þar. Það eru ekki miklar líkur á að þú sért að fara að gleymast á næstunni kallinn minn. Kv. úr víkinni. Elísa.

    ReplyDelete
  7. Tek undir með Elísu, Þórir þú verður að mæta. Það verða allir að mæta. Mannstu ekki hvað var gaman síðast.
    Kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  8. Þú gleymist ekki Þórir! Við tökum þetta með stæl í ágúst félagi ;-)

    Kv, Róbert Daníel

    ReplyDelete
  9. Komnar nokkrar myndir á facebook síðuna mína fyrir ykkur sem eru þar ;-)

    Kv, Róbert Daníel

    ReplyDelete
  10. Robbi geturu ekki skellt þeim hérna líka fyrir okkur hin sem erum ekki í face-heiminum.
    Ég sem hélt þú færir aldrei á facebook !! Er Erna kannski komin þangað líka ?
    Kv.Anna Svandís

    ReplyDelete
  11. Ég ætlaði að fara skoða nýjar myndir hér og þá eru þær á facebook! Ertu ekki að grínast?
    Skamm, skamm og settu þér hér inn.....

    ReplyDelete
  12. Æ, gleymdi að setja nafn við
    KV. Erna

    ReplyDelete
  13. Robbi hvar eru myndirnar ?

    ReplyDelete